Ađalvalmynd

Gagnasafn

Auglýsing

Leit

Tilvitnun dagsinsKári Viđarsson

Sandaragleðin hefst í dag með pompi og prakt.  Dagskráin er vel við hæfi eldra fólks í kvöld og því ætla ég að skella inn einni tilvitnun sem lýsir vel stemmingunni í fullorðna fólkinu á sandinum fyrir kvöldið.

Gamlir sandarar ganga inn í Hraðbúð ESSO,

Drífa skúladóttir flýtir sér að skella á drífur sig út úr skrifstofunni og segir hátt og snjallt


,,Það er súpa og djamm í naustabúðinni í kvöld"

´þarf hafiði það góðir hálsar.  Súpa og djamm í kvöld á sandi

kári.

Herbert leit viđ í búđinni og heima. Tvisvar í bćđi..Kári Viđarsson

vil byrja á góðu kaldhæðnisskoti sem Raggi Koddi sendi á mig í búðinni í dag þegar ég hafði barist við Remolaðisprautuna í um fimm mínútur eftir að hann hafði pantað eina með öllu, lítið af steiktum.

,,vita þeir af þér á bæjarins bestu?"

7900800 kaldhæðnisstig

En sá árlegi viðburður átti sér stað í dag að gamla 80´s stjarnan Herbert Guðmunds eða Hebbi Gú eins og hann vill láta kalla sig núna mætti á hellissand.  Þessi góðkunni söngvari/íssali/sölumaður kemur einu sinni á ári og þá tekur bærinn góðann dauðakipp. Herbert var vel dulbúinn eins og sönnu selebi sæmir, klæddur í grá jakkaföt, hvíta skyrtu með gleraugu og sólgleraugu yfir gleraugun. Semsagt off the radar eins og sagt er.  Hebbi gekk inn og sagði:

,,drífa hérna?"
,,Nei" svaraði ég
,,ertu með svona hleðslutæki" (hleðslutæki fyrir Sony Síma)
,,Nei, en þú gætir kannski fengið þannig í tækja og tölvubúðinni ólafsvík"
,,búinn að fara þangað, þeir eiga ekkert, hann er fífl" svaraði Hebbí gú nett pirraður á því


ég sendi goðið af sjálfsögðu heim þar sem ég vissi að mamma ætti svona hleddara fyrir hann.  Hann keypti af mér Gúrmei Vindla í álboxi og við skildum sáttir sem æskuvinir. 

Stuttu síðar kemur faðir minn, viðar kylfa í búðina og segir mér að téður Herbert Gú hafi litið við þegar hann var einmitt að nudda.  Herbert lét sér víst ekki nægja að banka á útidyrnar heldur lamdi allann kofann að utan þar til nuddþeginn vaknaði og pabbi gat sagt honum að engin væri drífa í húsi og hleddarinn ekki til staðar í augnablikinu.  Þá kom herbert aftur upp í búð og spurði um mömmu.  Ég sagði honum að hún væri sennilega hjá vinkonu sinni í heimsókn.  Herbert hélt þá í heimsókn til Edda og Sibbu á bárðarási 2 þar sem hann tjillaði í garðinum og tók nokkra slagara í karókíinu. 

Þetta veit ég vegna þess að hann er nýfarinn héðan eftir að hafa reynt að hafa upp á mömmu í annað sinn.  ég sat hér inni í blautum stuttbuxum eftir gott tjill í potti þegar ég heyri bankað létt á svalarhurðina og inn gægjist hebbi gú með sólgleraugun yfir gleraugun

,,Mamma þín ekki komin heim?"
,,Nei" ítrekaði ég á stuttbuxum einum fata
,,jæja skilaðu kveðju til hennar, ég kem kannski aftur á morgun eða hinn eða í kvöld"
,,Ekkert mál"
,,Ertu búinn í vinnunni í dag?"
,,Já" sagði ég
,,já ég var bara hjá Edda og Sibbu... Og eftir fylgdi sagan af garðtjillinu og Karókíinu, mikið hefði ég viljað vera fluga á vegg í því partýi,

,,skilaðu kveðju til mömmu þinnar"
,,Já"

Og þá gekk hann af pallinum og inn í rauða bílinn sinn og keyrði löturhægt út úr mínu lífi nema ef ske kynni að hann gægðist hérna inn á næstu tímum eða dögum

Tútúlú Hebbi Gú

Kári

Hvađ á Barniđ ađ heita?Kári Viđarsson

Tinky Winky...

Kauri(smaki?)

DjöööKári Viđarsson

Döfull er framhaldsmyndin á stöð tvö léleg

Einhver?

Díses...


Kauri(smaki?)

Fćreyskir Dagar.Kári Viđarsson

Þið hélduð að þessi færsla yrði um Færeyka daga? nei.  Ég var á hróaskeldu og komst þannig hjá því að verða barinn eða lokaður inni í kamri meðan nettir snillingar hristu skítinn yfir mig.

Hróaskelda var snilld.  Sex dagar, ein sturta, 20 tónleikar, nett camp og fullt af keböbum.  Hvað stóð uppúr?

Bestu tónleikarnir að mínu mati voru Sigur Rós.

skrýtið að sjá svona mikið af fólki gráta saman og þvílík upplifun að fylgjast með. 

Topp 5
Sigur Rós (Gæsahúð, Tár, Einlægni)
Strokes (Dans, Bjór, Sigfús, Sól, Converse skór)
Kanye West (Magga, Hlýrabolur, Gull, Fremst, Strengjaband)
Morrissey (Rauðvín, Claus,Charmi, Panic)
Kaiser Ciefs (Söngvarinn workaði krádið)

Vonbrigðin
DEUS
Martha Wainwright

Leitt að missa af:
Placebo
The Streets

Feginn að missa af:
Guns and Drasles
TOOL
HIM

Nýjar uppgötvanir:
The Editors (góð byrjun, stuð, raddtvíburi söngvara interpols)
Matisyahu (Gyðingasloppur, Beatbox, góður boðskapur)


Ég er feitt sáttur í heildina.  Kem með góðar sögur af hátíðinni seinna en í þessu ætla ég að fara upp á heilsugæslu að heimsækja fórnarlömb færeyskra daga og sletta leifunum af sveittu kebabi framaní þau.

kauri(smaki?)

Inni á klósetti á Sjómannadagsballi...Kári Viđarsson

Átti þetta skemmtilega samtal sér stað.  Aron Baldursson gengur inn í góðum fíling og tekur sér stöðu við pissuskálina þegar Gamall refur Grjóni skítugi verður hann kallaður hér segir með rónatón:

Grjóni Skítugi: ,,Þetta er alltaf sama helvítið, tuttugu ár og alltaf eins"
Aron: ,,Já svona er þetta"
Grjóni Skítugi: ,,'Eg er nú búinn að vera hérna í tuttugu ár"
Aron: ,,já þú ert duglegur"
Grjóni Skítugi: ,,ÉG er búinn að vera hérna í tuttugu ár en samt á ég ekki neitt"
Aron: ,,Já þú ert Aumingi"
Grjóni Skítugi: ,,Ég drep þig"

Þá gekk aron útaf klósettinu, hló mikið og sagði: ,,Ég held að það sé maður að koma út af klósettinu til þess að drepa mig.

Við biðum dágóða stund við barinn en aldrei lét Grjóni sjá sitt skítuga andlit.  Ég held að hann hafi sennileg lamið einhvern annan fyrir misskilning. 

Ég kveð með orðum vinkvenna minna í nylon og segi: ,,þú ert fimm á rickter og ég finn fyrir þér"

kári.

Sćk Át...Kári Viđarsson

Góð helgi að baki og ég er kominn aftur heim á Sandinn.  Það er helst í fréttum að ég fór á Ísland - Svíþjóð og það var mikið stuð.  Ég er á því að ég og smári eigum stórann þátt í að liðið komst áfram vegna þess að við tókum svo gott sæk át á Kim, örvhentu skyttu svíana.  Hann skoraði bara eitt mark í fyrri hálfleik og ég held að það sé okkur félögunum að þakka.

Sæk át = að pirra andstæðing í íþróttum og láta hann þannig missa stjórn á skapi sínu og fara á taugum.

Sæk átið sem við tókum á Kim var einkar pirrandi og einfalt.  Það fólst í því að segja nafnið Kim eins oft og við gátum þegar hann fékk boltann.

við byrjuðum á einu löngu Kim. kiiiiiiiiiiiiiiiiim. sem síðan ágerðist yfir í mörg stutt kimkimkimkimkimkimkim..

sækátið hefur hljómað einhvernveginn svona:

,,Kiiiiiiiiiim Kiimmm KIMKIMMKIMMKIMMKIMMKIMMKIMMKIMMKIMMKIMM... o.s.frv þangað til hann sendi boltann eða klúðraði.

fleiri sækát sem hægt er að nota eru t.d. þessi

Körfubolti:  þegar maður dekkar manninn með boltann setur maður lófann fyrir augun á honum og segir ,,FEIS, FEIS,FEIS" ath. það á einungis að byrgja mönnum sín en ekki koma við andlitið á andstæðingnum. Það er villa

Fótbolti: Kaldhæðnis ,,kemur næst" hefur oft virkað vel. einnig ,,reyndu bara að vera aðeins betri næst" og ,,ekki vera svona heimskur næst"

Skák: ,,Bannað að svindla" og ,,ég hengi mig ef ég tapa" ættu að nægja til að taka andstæðinginn úr sambandi

Og síðast en ekki síst, og þetta á við allar íþróttir.  Það er hið sígilda TEX. þá texar maður andstæðinginn nett þegar dómarinn sér ekki til.

að texa = að girða niðrum einhvern buxurnar.

góða skemmtun

kári.

Touch the skyKári Viđarsson

I gotta testify, come up in the spot looking extra fly, for the day I die.. I´m gonna touch the sky.

Kanye West kemur kappanum í stuð á fimmtudageftirmiðdegi.  Hellissandur samur við sig. HM í gangi.  Heimir Guðjónsson er svo leiðinlegur lýsir. SHIT... vá ég myndi frekar hringja í Aspas heldur en hann man!! ,,sviss sviss"  hóhó hvað get ég sagt ég er frekar hress á því.  fann hvítu predatorarana á svölunum hjá afa gamla umhelgina, þvoði þá tvisvar enda búnir að vera í 8 mán á svölunum. 


Fór í Bolta með strákunum í gær í góðri rigningu.  Ari er frekar grillaður drengur. frasar eins og

,,Bombosí"
,,Okey ég er sterkur...  Ekki beiskur"
,,Gerið var ennþá á sveimi í bollunni! plús rúsínur maður"

hvað gerði maður án hans? það er spurning sem ég er ekkiviss um að ég vilji vita svarið við.  Ég og Smári á Grímunni á morgun? Ég og Smári á Ísland Svíþjóð?  Já og Já.. Eat your hearts out og kemur næst aular!!!

Það er eitraður kári sem ætlar að fara að undirbúa leiklistarnámskeið og skella sér í netta skó fyrir fótboltaæfingu í kvöld? 

I´m Sky high!! Ég fer á hann á hróaskeldu

Kári.

,,Sviss Sviss"Kári Viđarsson

Eins og þið munið kannski sum hef ég verið seigur í að koma svokölluðum ,,trend" orðum og orðatiltækjum í gang í gegnum tíðina.  Hver man ekki eftir frösum eins og:

,,Segamegatöff"
,,Puffsaður" (þegar einhver hefur borðað yfir sig af cocoa puffsi)
,,Sneddí Nautasnilld"
,,Hey! Gluggaðu í tíðindin" (þessi náði einhvernveginn aldrei sessi)
,,Hey gaur! hættu að tjútta með trantinum"

jæja hvað um það.  Nú er ég kominn með einn nýjann. hann hljómar svona:
,,Sviss Sviss" og á við þegar einhver hefur verið svissaður eins og svissaður laukur.  þetta er svipað og þegar sagt er ,RÚST" nema í staðinn þá segir maður

,,SVISS SVISS" og þykist vera að svissa lauk á pönnu í leiðinni. 

hér koma nokkur dæmi um það hvenær ,,Sviss Sviss" hefði getað verið notað. 

Óli Rokk við Ragnar Smára:

RS: er ekki hægt að leigja vídjó hérna einhverstaðar?
Óli: Er ekki hægt að leigja mömmu þína!

(þarna hefði einhver getað sagt sviss sviss við ragnar því hann var illa svissaður)

hér koma nokkur önnur dæmi:

Gunnar Við Ejub: ,,ha? ertu alveg að dreppast í löppinni?"

Aron við Sigurjón á dekkjaverkstæðinu: ,,Já, þú ert aumingi"

Ég við Snæbjörn: ,,Snæbjörn af hverju talaru með ítölskum hreim þegar þú klæðist juventusbúningnum þínum"
Ari við okkur alla í íþróttahúsinu: ,,þarf ég að gefa ykkur öllum ADSL?"
Sagt við Grím bróður Smára: ,,Nei Snoop dog! blessaður"
Óskar Sveins við Höskuld: ,,Ég hélt þú værir að hlaupa í bakaríið"

Kári


Free TransferKári Viđarsson

Ég var samningslaus á Minnsirkus.is og því flutti ég mig yfir til nýs liðs.  Liðið heitir Bloggar.is.  Þetta er svipað og þegar Henrik Larson ákvað að fara á Free Transfer til Helsingborgar á næsta ári nema að ég er ekki heimskur eins og hann.  Ástæðan er líka sú að ég var farinn að fá kvartanir yfir því að fólk gæti ekki kommentað á snilldina á minnsirkus.  Svo var það líka mjög pirrandi að ásgeir kolbeins var alltaf að láta mig vita að þátturinn hans um Ungfrú Ísland væri í fullum gangi.  Skull.

En hér hafiði það miklu meistarar.  K-pax.bloggar.is here to stay.

kari.bloggar.is var frátekið svo að þetta lá í augum uppi uppi.

Kári

Könnun

Viltu ţetta?

Fólk