k-pax.bloggar.is
Tilvitnun dagsinsKári Viđarsson
Sandaragleðin hefst í dag með pompi og prakt. Dagskráin er vel við hæfi eldra fólks í kvöld og því ætla ég að skella inn einni tilvitnun sem lýsir vel stemmingunni í fullorðna fólkinu á sandinum fyrir kvöldið.Gamlir sandarar ganga inn í Hraðbúð ESSO,
Drífa skúladóttir flýtir sér að skella á drífur sig út úr skrifstofunni og segir hátt og snjallt
,,Það er súpa og djamm í naustabúðinni í kvöld"
´þarf hafiði það góðir hálsar. Súpa og djamm í kvöld á sandi
kári.
Herbert leit viđ í búđinni og heima. Tvisvar í bćđi..Kári Viđarsson
vil byrja á góðu kaldhæðnisskoti sem Raggi Koddi sendi á mig í búðinni í dag þegar ég hafði barist við Remolaðisprautuna í um fimm mínútur eftir að hann hafði pantað eina með öllu, lítið af steiktum.,,vita þeir af þér á bæjarins bestu?"
7900800 kaldhæðnisstig
En sá árlegi viðburður átti sér stað í dag að gamla 80´s stjarnan Herbert Guðmunds eða Hebbi Gú eins og hann vill láta kalla sig núna mætti á hellissand. Þessi góðkunni söngvari/íssali/sölumaður kemur einu sinni á ári og þá tekur bærinn góðann dauðakipp. Herbert var vel dulbúinn eins og sönnu selebi sæmir, klæddur í grá jakkaföt, hvíta skyrtu með gleraugu og sólgleraugu yfir gleraugun. Semsagt off the radar eins og sagt er. Hebbi gekk inn og sagði:
,,drífa hérna?"
,,Nei" svaraði ég
,,ertu með svona hleðslutæki" (hleðslutæki fyrir Sony Síma)
,,Nei, en þú gætir kannski fengið þannig í tækja og tölvubúðinni ólafsvík"
,,búinn að fara þangað, þeir eiga ekkert, hann er fífl" svaraði Hebbí gú nett pirraður á því
ég sendi goðið af sjálfsögðu heim þar sem ég vissi að mamma ætti svona hleddara fyrir hann. Hann keypti af mér Gúrmei Vindla í álboxi og við skildum sáttir sem æskuvinir.
Stuttu síðar kemur faðir minn, viðar kylfa í búðina og segir mér að téður Herbert Gú hafi litið við þegar hann var einmitt að nudda. Herbert lét sér víst ekki nægja að banka á útidyrnar heldur lamdi allann kofann að utan þar til nuddþeginn vaknaði og pabbi gat sagt honum að engin væri drífa í húsi og hleddarinn ekki til staðar í augnablikinu. Þá kom herbert aftur upp í búð og spurði um mömmu. Ég sagði honum að hún væri sennilega hjá vinkonu sinni í heimsókn. Herbert hélt þá í heimsókn til Edda og Sibbu á bárðarási 2 þar sem hann tjillaði í garðinum og tók nokkra slagara í karókíinu.
Þetta veit ég vegna þess að hann er nýfarinn héðan eftir að hafa reynt að hafa upp á mömmu í annað sinn. ég sat hér inni í blautum stuttbuxum eftir gott tjill í potti þegar ég heyri bankað létt á svalarhurðina og inn gægjist hebbi gú með sólgleraugun yfir gleraugun
,,Mamma þín ekki komin heim?"
,,Nei" ítrekaði ég á stuttbuxum einum fata
,,jæja skilaðu kveðju til hennar, ég kem kannski aftur á morgun eða hinn eða í kvöld"
,,Ekkert mál"
,,Ertu búinn í vinnunni í dag?"
,,Já" sagði ég
,,já ég var bara hjá Edda og Sibbu... Og eftir fylgdi sagan af garðtjillinu og Karókíinu, mikið hefði ég viljað vera fluga á vegg í því partýi,
,,skilaðu kveðju til mömmu þinnar"
,,Já"
Og þá gekk hann af pallinum og inn í rauða bílinn sinn og keyrði löturhægt út úr mínu lífi nema ef ske kynni að hann gægðist hérna inn á næstu tímum eða dögum
Tútúlú Hebbi Gú
Kári
Fćreyskir Dagar.Kári Viđarsson
Þið hélduð að þessi færsla yrði um Færeyka daga? nei. Ég var á hróaskeldu og komst þannig hjá því að verða barinn eða lokaður inni í kamri meðan nettir snillingar hristu skítinn yfir mig.
Hróaskelda var snilld. Sex dagar, ein sturta, 20 tónleikar, nett camp og fullt af keböbum. Hvað stóð uppúr?
Bestu tónleikarnir að mínu mati voru Sigur Rós.
skrýtið að sjá svona mikið af fólki gráta saman og þvílík upplifun að fylgjast með.
Topp 5
Sigur Rós (Gæsahúð, Tár, Einlægni)
Strokes (Dans, Bjór, Sigfús, Sól, Converse skór)
Kanye West (Magga, Hlýrabolur, Gull, Fremst, Strengjaband)
Morrissey (Rauðvín, Claus,Charmi, Panic)
Kaiser Ciefs (Söngvarinn workaði krádið)
Vonbrigðin
DEUS
Martha Wainwright
Leitt að missa af:
Placebo
The Streets
Feginn að missa af:
Guns and Drasles
TOOL
HIM
Nýjar uppgötvanir:
The Editors (góð byrjun, stuð, raddtvíburi söngvara interpols)
Matisyahu (Gyðingasloppur, Beatbox, góður boðskapur)
Ég er feitt sáttur í heildina. Kem með góðar sögur af hátíðinni seinna en í þessu ætla ég að fara upp á heilsugæslu að heimsækja fórnarlömb færeyskra daga og sletta leifunum af sveittu kebabi framaní þau.
kauri(smaki?)